| Um PinkPuffin | Ráðgjöf | Viðskiptavinir | Hafðu samband |

 | English version | Svensk version |


Ráðgjöf

Sérfræðingamat
Einn eða fleiri sérfræðingar á sviði notendaviðmóts skoða virkni vefsíðunnar út frá sérstakri aðferð fyrir mat af þessu tagi og beita til þess sérþekkingu á viðmótshönnun.

Árangur
Listi yfir þau vandamál sem notendur lenda í og tillaga að úrbótum.

Viðmótsprófanir
Viðmótsprófanir felast í því að fulltrúar úr notendahópnum eru fengnir til að leysa raunhæf verkefni á vefsíðum og fylgst er með þeim við lausn verkefnanna. Í sambandi við prófið eru einnig tekin viðtöl við þátttakendurna. Tilgangurinn er að sjá til þess að kerfið sem er verið að hanna/endurhanna verði örugglega í samræmi við væntingar notendahópsins.

Árangur
Árangur af verkefnavinnunni og hvers kyns vandamál eru skráð og þau metin ásamt tillögum að úrbótum.

Þarfagreining
Með þarfagreiningu er átt við greiningu á markmiðum og tilgangi vefsíðunnar og þess kerfis sem henni heyrir til, þ.e.a.s. að kynnast notendahópnum til þess að tryggja að kerfið uppfylli þarfir þeirra og væntingar. Tilgangur þarfagreiningar er að auðvelda vinnu í framtíðinni, því reynslan hefur sýnt að þarfagreining styttir framleiðsluferlið til muna, dregur verulega úr kostnaði og tryggir velgengni kerfisins. Þær aðferðir sem eru notaðar byggja á etnógrafískum vettvangsrannsóknum, virkjun markhópa og viðtölum.

Árangur
Niðurstöðunum af þarfagreiningunni er skilað í ítarlegri skýrslu um þarfir og væntingar notendahópsins ásamt lýsingum á dæmigerðum notendum sem oft eru nefndar personas.

Hönnun frumgerða
Frumgerð er eftirlíking af virku kerfi sem er notað til þess að prófa nothæfni kerfisins áður en kerfið er endanlega skapað. Frumgerðin er prófuð á fulltrúum úr notendahópnum og fer prófið fram á svipaðan hátt og viðmótsprófanir á vefsíðum. Frumgerðin er síðan endurbætt og prófunin endurtekin þangað til að kerfið telst nothæft.

Árangur
Prófaðar frumgerðir tilbúnar til vinnslu.

Upplýsingablað um PinkPuffin í PDF (á ensku)