| Um PinkPuffin | Ráðgjöf | Viðskiptavinir | Hafðu samband |

 | English version | Svensk version |


Um PinkPuffin

PinkPuffin er fyrirtæki sem sérhæfir sig í greiningu á nothæfni. Með úttekt og mælingum á notendaviðmóti og gildi þess, hjálpar PinkPuffin fyrirtækjum að móta vefstefnu sem uppfyllir kröfur notendanna. PinkPuffin tekur að sér að framkvæma prófanir og veitir ráðgjöf sem miðar að því að bæta hönnun viðmóts og spara þannig kostnað vegna endurhönnunar, gera kerfi skilvirkari, nytsamari, og síðast en ekki síst að auka líkurnar á vinsældum vefsíðna.

Á bak við PinkPuffin stendur Rósa Guðjónsdóttir, félagsmannfræðingur, sem hefur margra ára reynslu af vinnu við nothæfni, hönnun vefsíðna og mælingum á notagildi, á bæði tal- og vefviðmótum. Rósa starfar með stórum hópi sérhæfðra ráðgjafa með víðtæka þekkingu og reynslu af viðskiptahugbúnaði og upplýsingatækni. Með netverkinu opnast þér möguleiki til að leita til sérsniðins hóps sérfræðinga þegar kemur að hönnun/endurhönnun vefsíðu þinnar.

Upplýsingablað um PinkPuffin í PDF (á ensku)